laugardagur, júlí 29, 2006

Ljónsbræður

ég og brói höfum verið nefndir ljónsbræður því báðir erum við í ljónsmerkinu....ég rétt við upphaf ljónsins en brói alveg undir lokin á því....það hefur ekki farið framhjá neinum að brói sé ljón, sérstaklega af því hann hefur alla tíð verið heillaður af ljónum og skriðið um gólf og urrað...hann vill til líka að urra eins og ljón á fólk upp úr þurru...það verður spennandi að vita hvort ég taki þetta hlutverk jafn alvarlega og stóri brói...ég er alla vega farin að láta heyra vel í mér þegar mamma og pabbi eru að skipta á mér og rek þá upp skaðræðis öskur...ég byrja vel sko...en hérna koma smá upplýsingar um lítil ljón

ljón
23.júlí - 22.ágúst

Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.

0 Athugasemdir:

Skrifa ummæli

<< Home